Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi rekur vefsetrið kennari.is. Skólinn fékk styrk frá Menntamálaráðuneytinu til að semja og safna efni á vef sem nýtist kennurum við tölvustudda kennslu ýmissa námsgreina. Hér birtist fyrsti hluti þess efnis en vefurinn verður sleginn áfram skólaárið 2001 - 2002. Harpa Hreinsdóttir, kennari við FVA, hefur umsjón með verkinu.Aðaláherslan er lögð á að leiðbeina kennurum sem vilja birta efni á vefsíðum og nýta vefinn í kennslu. Allar leiðbeiningar eru á íslensku og leitast er við að hafa þær eins skýrar og einfaldar og kostur er. Jafnframt var það haft að leiðarljósi að benda á ókeypis eða mjög ódýr forrit sem nota má til að gera kennsluefni, koma efni á vefinn og gera það sem best úr garði.
Öllum eru heimil afnot af efninu til náms og kennslu en virða ber höfundarétt efnis.