Hugmyndir
um samþættingu upplýsingatækni
og námsgreina
Þegar kennari hyggst bæta upplýsingatækni (notkun tölva) í kennsluna er farsælast að byrja smátt en hyggja hátt. Lítil, afmörkuð verkefni henta best í upphafi. Síðarmeir má færa út kvíarnar og leggja í viðameiri verkefni. Hér er bent á nokkrar verkefnagerðir sem henta við notkun internets, einkum vefs, í kennslu. Jafnframt er bent á slóðir þar sem sækja má hugmyndir eða kennsluefni. Seinna verður hér bætt inn fleiri hugmyndum og þá einnig um tölvutæk verkefni sem ekki snúast um internetið. Ábendingar um góðar hugmyndir að verkefnum í kennslu eru vel þegnar! Sendið slíkar til kennari@kennari.is
Verkefni
Ítarefni